|
|
|
|
1. Hlutverk og framtíðarsýn
Markmið samkvæmt skipulagsskrá
-
Markmið Símenntunarmiðstöðvarinnar er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem taki mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga.
-
Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi.
Skipulagsskrá Símenntunarmiðstöðvarinnar 3. gr.
Hlutverk
Að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins.
Framtíðarsýn
-
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er miðja í þróun og miðlun þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar
-
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu.
2. Greining á núverandi stöðu
Uppruni - eigendur – bakhjarlar
- Fjölbrautaskóli Vesturlands
- Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
- Viðskiptaháskólinn á Bifröst
- Stéttarfélög (4)
- Fyrirtæki (10)
- Sveitarfélög (12)
Fyrirmynd
- ,,Ole Imsland er guðfaðir SV” (Blað SV haustið 99)
- Brúa bilið milli menntunar og atvinnulífs
- Lítil yfirbygging
- ,,Setjið alla símenntun undir SV en reynið ekki að halda bestu bitunum fyrir ykkur sjálf.
- Minnist alltaf á SV þegar talað er um endurmenntun.” (Ole Imsland 1999)
Hvað gerum við?
- Námskeiðshald á eigin vegum eða í samvinnu við aðra fræðsluaðila
- Nám í atvinnulífinu
- Almennt nám
- Tómstundanám
- Nýtt tækifæri til náms
- Miðlun náms á framhaldsskólastigi
- Miðlun náms á háskólastigi
- Upplýsingaveita um námsmöguleika fullorðinna
- Dreifum námframboðinu á svæðin – 8 kennslustaðir
Starfsmenn
- Framkvæmdastjóri – 100% stöðugildi
- Skrifstofustjóri -100% stöðugildi
- Náms- og starfsráðgjafi 65% stöðugildi
- Ráðgjafi - símenntun í fyrirtækjum 35% stöðugildi
Leiðbeinendur
- Verktakar eftir þörfum
- Flestir eru kennarar í grunn- eða framhaldsskólum
- Fáir sótt námskeið í kennslu fullorðinna
Húsnæði – aðstaða
- Leiguhúsnæði fyrir skrifstofu í Borgarnesi
- Skrifstofuaðstaða i Fjölbrautaskóla Vesturlands
- Kennsluhúsnæði leigt eftir þörfum af skólum og öðrum aðilum á svæðinu
- Námsver m/FS neti og fjarfundabúnaði á 5 stöðum í samvinnu við sveitarfélögin
- Tæknin og/ eða umsýsla veikleiki sumstaðar
Samskipti við svæðin
- Óformlegir tenglar
- Grasrótin
- Viðvera og fundir í Viku símenntunar
- Viðkvæmt samband
- Þarf að gera það formlegra?
Athafnasvæði - viðskiptavinir
Samstarfsaðilar út á við
-
Kvasir – samtök símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni
-
Mennt – samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla
-
Evrópuverkefni
-
Menntamálaráðuneytið
-
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fjármögnun
- 9 milljónir 2003 og 2004
- 1.2 milljónir vegna FS netsins 2004
- Farið var fram á 14.1 milljón
- Kvasir hefur óskað eftir að gerður verði þjónustusamningur við mmr.
- Grunnverkefni; laun, aðstaða, ráðgjöf, kynning og hvatning
- Sérverkefni; miðlun framhalds- og háskólanáms, nýtt tækifæri til náms, námskeið í strjálum byggðum, nýbúakennsla o.fl.
- Sala námskeiða og styrkir v/ sérverkefna
3. Meginmarkmið Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi
- Að efla símenntun í atvinnulífinu
- Að sjá til þess að allir íbúar hafi aðgang að menntun við hæfi
- Að ná til fólks með stutta skólagöngu
- Að vera virk upplýsingaveita um námsmöguleika fullorðinna
- Að veita góða þjónustu í samræmi við óskir umhverfisins
4. Starfsmarkmið Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi
- Að efla símenntun í atvinnulífinu
- Að sjá til þess að allir íbúar svæðisins hafi aðgang að menntun við hæfi
- Að hafa gott og virkt tengslanet á svæðinu.
- Að kortleggja núverandi tengslanet
- Að halda a.m.k. 2 námskeið á hverju svæði á önn
- Lágmarksþátttaka – 5 manns
- Að bjóða upp á fjölbreytt nám.
- Starfsmenntun
- Nýbúafræðsla
- Tómstundanámskeið
- Nýtt tækifæri til náms
- Miðlun háskólamenntunar
- Miðlun framhaldsskólanáms
- Persónuleg hæfni
- Að ná til fólks með stutta skólagöngu
- Að vinna að þarfagreiningu markhópsins
- Að markaðssetja framboðið
- Virkja stéttarfélögin til hvatningar
- Að hafa eina Menntasmiðju árlega
- Að vera virk upplýsingaveita um námsmöguleika fullorðinna
- Langtímamarkmið: Að veita fólki faglega náms- og starfsráðgjöf með ráðningu fagmanns
- Finna fjármögnun – samstarfsaðila til að geta sinnt faglegri náms- og starfsráðgjöf.
- Að veita góða þjónustu í samræmi við óskir umhverfisins
- Að koma þjónustunni á framfæri – markaðssetning
- Að stuðla að fagmennsku leiðbeinanda
- Að halda regluleg námskeið fyrir leiðbeinendur
- Að halda áfram núverandi samstarfi um ,,Lipra leiðbeinendur”
- Að tryggja góðan tækjakost m/ góðri faglegri umsýslu í námsverunum
- Tækjakosturinn er góður en það þarf að tryggja góða umsýslu
- Að starfsmenn vinni af fagmennsku
- Að þjónusta fólk hratt og vel
|
|
|
|
|